Bloggið okkar

14.08.2008 23:44:38 / Jenný

OMG

10 heimsóknir í dag, hverjir eru það eiginlega sem eru ekki enn búnir að gefast upp á okkur? hehehe síðan varla búin að vera við lífsmark í marga mánuði

Kv

Jenný á " Beisnum"

» 4 hafa sagt sína skoðun

09.03.2008 17:36:26 / Jenný

Hún er ekki velkomin

Hún réðst inn á heimilið okkar, alveg óboðin. Ekki hefur okkur tekist að sparka henni út. Það þolir hana enginn og fer hún ansi illa með fólk.
Kemur mis oft í heimsókn til fólks og allsstaðar er hún jafn óvelkomin.
Já við erum að tala um flensuna :^)
Hún er mætt á svæðið. Sú fyrsta til þess að verða fyrir barðinu á henni er hún María Ashley. Er með tæplega 40 stiga hita, höfuðverk, beinverki og fl.
Ætli við Sigurður fylgjum ekki í kjölfarið :whut:
Finnst ég eitthvað hálfskrítin í kroppnum.
Það er ekkert grín að vera með einn eins árs sem er eins og skriðdreki útum allt og upp um allt og að sinna dömunni sem getur hvorki hreyft legg né lið.
Hún liggur í sófanum og reynir að sofa en það er einn rauðhaus sem er alltaf eitthvað að banka í hana.
Hún sat áðan með ælufötu hjá sér og Sigurði fannst hún afar áhugasöm. María gat ekki haldið á henni sökum máttleysis og ekki gat ég haft hana á gólfinu né í sófanum. Ákvað að geyma hana á eldhúsborðinu og um leið og daman kallaði kom ég hlaupandi með fötuna. Þetta var á svona 2 mín fresti á tímabili.
Úff er hálf sveitt og þreytt húsmóðir :s

Vona að í næstu færslu verði flensan ekki lögst á mig. Ekkert grín að vera lasin með lasið barn /lasin börn

Þá sendi ég út Neyðarstunu hahhaha  ( æi Lovísa les þetta ekki, þá er þetta ekkert fyndið).


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.03.2008 12:43:45 / Jenný

Hlutirnir gerast á Facebook

Góðan daginn allar :d

Hvernig er heilsan stelpur ? :haha:

Fyrir ekki svo löngu síðan fékk ég mér MySpace síðu. Það sem var búið að nuða í mér í sambandi við að ég ætti að fá mér svona. Ég var sko ekki "inn" fyrst að ég væri ekki með síðu á MySpace eins og ALLIR. Jæja ég fæ mér MySpace. Skildi nú varla fyrst út á hvað þetta gekk en er nú komin betur inn í þetta og lýst bara vel á. Já og mér fannst ég vera loksins "INN"  hehe

Svo er byrjað aftur, "hey ertu ekki með Facebook?" ég bara ha hvað er það? Og það var sama sagan. Maður er ekki maður með mönnum nema að vera með Facebook.

Jæja eitt kvöldið ákvað ég að fá mér Facebook (segir maður Fá sér Facebook? eða kannski skrá sig á Facebook?) lýst mjög vel á þetta Facebook dæmi, þó svo að það sé miklu flóknara finnst mér það í rauninni miklu skemmtilegra en MySpace. Maður getur gjörsamlega gleymt sér þarna inni :lol:

Það er sko inn á Facebook sem að hlutirnir gerast Múúhaaa  :haha:

Góða helgi


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.03.2008 00:00:56 / Jenný

A HA

Þegar ég var í vinnu seinnipartinn sl. sunnudag heyrðist þetta:

" Passenger going to Oslo, Morten Harket please contact the sevice desk"

Hefði ég ekki verið ein í búðinni hefði ég rokið til og komið að borðinu á undan honum og sagt

" How u doin ?" :haha::haha:

Fyrir ykkur sem vitið ekki um hvern ég var að tala þá er þetta maðurinn (bara hot)

S.s söngvari hljómsveitarinnar A Ha , hennar frægðarsól skein sem hæðst um 1980+ 

Fínn mánudagur á enda. Notaði tímann og byrjaði að pakka niður, þegar ég leit undan til þess að pakka niður næsta hlut þá tók einkasonurinn upp úr kassanum á meðan. Það gekk sem sagt MJÖG hægt að byrja pakka sökum mjög iðins aðstoðarmanns :)
Það höfðust nú samt nokkrir kassar á endanum.

Drasl
Þegar ég bjó á Háteignum þá gat ég ekki beðið eftir því að flytja í stærra húsnæði, var alveg viss um að það yrði minni drasl. Allavegna ekki eins áberandi.
Núna í dag tók ég allt til í hádeginu og um klukkan 18 var eins og sprengja hafði fallið.
Nú er ég hins vegar viss um að þetta lagist allt þegar ég fari í minna húsnæði ;) 
Eða er það ekki örugglega?

Er að horfa á eina bláa núna, já þið lásuð rétt BLÁA.
Sigurður minn tók á það ráð að skríða um öll gólf með afruglarafjarstýringuna í annari og slá henni alltaf reglulega í gólfið. Það varð til Þess að ALLAR stöðvar í gegnum afruglarann eru BLÁAR :^)
Ætlaði að reyna að "berja" þetta til baka en það lagaðist í smá tíma og varð svo aftur blátt.
Anna mín þú átt þá von á að það verði ein blá í gangi þegar þú kemur á morgun.

Jæja nú er þessi dagur að enda komin og ég farin að sofa

KV

Jenný




» 4 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 12:24:45 / Jenný

Þetta lýsir skapi mínu í dag



SKÁL ...

» 5 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 15:24:51 / Jenný

Er ekki komin tími til að hætta ...



Hef heyrt að þetta sé drykkur djöfulsins :(  Miðað við fráhvarfseinkennin sem ég fékk seinast þegar ég hætti þá kemur mér þetta ekki á óvart.

Nú er komin tími til að fara að endurskoða drykkjuna. Þetta er eiginlega bara komið gott. Eins og ég sagði við Ingu, þá ætla ég að fara að vinna í því að fara að hugsa um að hætta. S.s ekki á næstunni en kannski fyrir sumarið :d 

Annars er ég orðin hundleið á þessum snjó og slabbi :^)

Er barnlaus í dag og er búin að vera að njóta þess. Æðislegt að geta "andað" smá. Þó svo að það sé yndislegt að hafa gullmolana sína hjá sér þá er það öllum mömmum nauðsynlegt að fá smá break. Maður verður bara betri mamma fyrir vikið :haha:

Næsta færsla kemur eftir helgi :haha::haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 08:19:54 / Jenný

Babyland

Vegna fjölda áskorana frá vinum og vandavönnum víðsvegar um heiminn þá er barnalandssíðan opin á ný :d 
Fólk ekki sátt við að geta ekki fylgst með krökkunum :haha:




» 3 hafa sagt sína skoðun

22.02.2008 19:13:09 / Jenný

Já sæll

Eigum við að ræða það eitthvað hvað maðurinn er myndarlegur !!
79920350.jpg  

Vonandi eigiði góða helgi elskurnar, veit að mín verður góð :d:d:d

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 14:26:17 / Jenný

Sunnudagur.... góður dagur

Mikið svakalega er ég dugleg í blogginu :D og megi nú aðrir taka mig til fyrirmyndar :$

Hér er búið að vera stelpupartý síðan í gær, karlmennirnir á heimilinu voru dreknir að heiman :D Ég, María og vinkona hennar erum búnar að vera með stelpupartý síðan í gær. Voða gaman og voða kósý. Mamman fékk að sofa til 10:30 í morgun ahhhh ljúft. Á sko lengi eftir að lifa á þessum svefni. Svo var skellt sér í sund, mikið agalega var það hressandi. Synd hvað maður gerir lítið af þessu.

Hvað er málið með konur sem raka sig í sturtunni í sundlaugum???? Mér finnst það gjörsamlega viðbjóðslegt. Halló gerið þetta heima hjá ykkur!!

Sigurður lúllaði í Garðabænum í nótt og þar fann amma fyrstu (alvöru) tönnina :D, segi alvöru vegna þess að eins og flestir vita þá taldi ég mig hafa fundið tönn fyrir um 2 vikum sem var svo bara engin tönn, mamman með smá wishful thinking :haha:  Hlakka til að hitta litla kallinn minn á eftir  og sjá fyrstu tönnina :D

Ætla að halda áfram í letinni á meðan ég hef næði til þess

Jenný


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.11.2007 10:14:59 / Jenný

Föstudagur

Fríhelgi runnin upp, plan dagsins var á þá leið að ég ætlaði að þrífa allt húsið hátt og lágt. María farin á leikskólann og Sigurður við það að fara að taka lúrinn sinn, þegar rennur upp fyrir mér að það sé föstudagur! Og það þýðir bara eitt............. að 6.þáttur af Greys var sýndur í Ameríku í gær og þ.a.l. komin á netið :D:D:D Þrifin flogin útum gluggan og núna kemst ekkert að nema að horfa á þennan 6.þátt:D  (nei ekki alveg flogin útum gluggan, byrja bara seinna en ég ætlaði).  Ég man ekki eftir því að hafa lifað mig svona inn í einhvern þátt áður, vil helst vera bara með Ingu á línunni og tala um það sem er að gerast og hvað eigi örugglega eftir að gerast. Sit hér með þvílíkan spenning í maganum eftir því að þátturinn hlaðist inn :lol:

Er þetta eðlilegt? Eða er þetta merki um að líf mitt sé eitthvað hálf innihaldslaust hahahahah

Er komin með kenningu, fyrir konu sem vinnur bara hálfan daginn og er heima með ungabarn allan daginn og gerir ekki mikið annað en að hugsa um börn og heimili þá er þetta svona escape from reality :) Gleyma stund og stað og lifa sig inn í þetta, er haggi bara??

Í gærkvöldi var ég með þvílíka beinverki, gat varla labbað og svo hræðilega illt í eyrunum og hugsaði great er að verða veik. Gaman að vera fárveikur og vera ein með krakkana alla helgina. Vakna svo í morgun og hef bara aldrei verið hressari og finn ekki fyrir neinu. Ég bara skil þetta ekki, er oft svona. Kannast einhver við svona ?

Úfff Emil er hangandi í gardínunum og hér angar allt af mjög svo góðri lykt af barninu, kúkableyja takk fyrir.


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 15:10:17 / Jenný

Takmarkinu EKKI náð

.................... Nei því er ekki náð. Mitt takmark var það að ég ætlaði ekki að setja inn færslu fyrr en einhver annar væri búinn. Það sýnist mér ekki alveg vera að gerast, þannig að ég tók bara af skarið. Hef þörf fyrir að tjá mig á prenti :)

Brrrr veturinn kominn og mig langar bara að vera stödd á einhverjum heitum stað með mínum manni, ahh bara við tvö og ekkert áreiti. Ahhh hversu ljúft væri það :lol::lol:

Var að skrá mig á námskeið í dansjóga, hlakka bara til :) svo er stefnan sett á Lífstíl eftir þetta námskeið. Stefnt er á kjólinn fyrir jólinn :) eins og alltaf hehe

Mikil voru fagnaðarlætin hér fyrir nokkrum vikum þegar húsmóðirin fann fyrstu tönnina hjá drengnum. Held að það hafi verið fagnað aðeins of snemma þar sem að það bólar bara ekki á neinni tönn :S Þannig að drengurinn heldur áfram að vera tannlaus, en svo eins og þeir segja því seinna sem að þær koma því sterkari verða þær.

Ætla að vera ofurskipulögð þessi jólin og reyna að vera búin að versla allar jólagjafir fyrir 1.des, því þá getum við fjölskyldan haft það notalegt saman í desember og notið aðventunnar í ró. Hugsa að það verði engin stórþrif fyrir þessi jól þar sem að ég er búin að vera á fullu að þrífa alla skápa og allt hátt og lágt til þess að losna við hundahárin. Hef reyndar aldrei skilið þessa hefð hjá húsmæðrum að þrífa allt hátt og lágt fyrir jólin. Auðvitað er allt fínt hjá manni en ég er að tala um stórhreingerningu. Til hvers? Bara til þess að stressa sig enn meir, í svartasta skammdeginu þá tekur gjörsamlega enginn eftir því hvort að skápar eða veggir séu hreinir og fl. Ég hef tekið þátt í þessari vitleysu, en ég er hætt því. Vill frekar eiga notalega aðventu með börnunum í staðinn. Vil að börnin mín upplifi jólahátíðina öðruvísi en bara stress fram að seinustu mínutu. Mér finnst nær að gera þetta á vorin.

Jæja drengurinn kallar

Ætla að hafa það súper gott þessa fríhelgi með börnunum, verst að Stefán er að vinna alla helgina. Hlökkum bara til sunnudagsins þá er vinnuhelgin hans búin og við getum við haft smá family time :D

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 09:22:56 / Jenný

Mouth to mouth

Hvernig væri nú að blása nýju lífi í þessa síðu?

Ég tók út afmælisboðskortið þar sem að síðan varð svo teygð.

Er í vinnu, ekkert að gera. Fínt samt að vera hér í rólegheitum og fá smá frið frá mínum yndislegum börnum.

 

Lov u girls


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 22:58:59 / Jenný

Myndir óskast

MYNDIR AF AFMÆLINU ÓSKAST HÉR INN :D:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 12:58:20 / Inga

Stella í orlofi...

Sælar skvísunar mínar

Alveg finnst mér ótrúlegt að það sé kominn ágúst, og maður hefur varla séð ykkur í sumar!  jú ég hef nú reyndar hitt Jenný nýlega og Önnu bara í gær.    En vonandi verður nú bara saumó fljótlega svo við getum nú spjallað og hlegið saman.  ;)

Ég sá einmitt líka að Sirrý kom með hugmynd að barnasaumó þegar Elín kæmi til landsins, mér líst líka voða vel á það, en eigum við ekki bara að fara að finna einhvern dag sem hentar öllum?  þyrfti það ekki að vera um helgi??  Ég er náttúrulega laus WHENEVER og er alltaf jafn glöð þegar einhver plön eru hjá mér, finnst voða gaman að fá félagsskap svona í orlofinu :) 

Nágrannar veita mér félagsskap svona í hádeginu og er bara fullt af nýjum andlitum þar....  ekki veitir af að endurnýja liðið, því dánartíðnin er nú svo há þarna í götunni.

 

Sjáumst vonandi fljótlega

Inga og litli snúllinn hennar

 

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 31586
Klukkan
Craft myndir